top of page
Program is over

Byrjenda námskeið í prjóni - ICEWEAR GARN

Dec 5, 2024 - Feb 13, 2025

  • 71 Days
  • 5 Steps

Um námskeiðið

Lærðu að prjóna húfu og peysu á þínum hraða og þegar passar þér. Við prjónum saman alveg frá því að fitja upp til fullkláraðs stykkis. Við bæði hittumst og þú færð aðgang að 40+ myndskeiðum sem þú spilar og stöðvar að vild. Þú færð skýra og góða kennslu frá Tinnu Laufdal. Í samstarfi við Icewear Garn ætlum við að hittast 3 sinnum í verslun þeirra í Skeifunni. Fyrsti hittingur er 5. desember, kl. 18-20. Þennan dag munu þátttakendur fá auka afslátt af garni og áhöldum. Annar hittingur er 29. desember kl. 10-12. Þriðji hittingur er 13. febrúar. Þessi hittingur er hugsaður til að sýna hvað við höfum verið að prjóna og ljúka námskeiðinu saman. Á meðan að námskeiðinu stendur tölum við saman í lokaða samfélaginu okkar á Facebook þar sem þú getur fengið enn meiri aðstoð og hvatningu svo þú sitjir aldrei föst/fastur. Í lok námskeiðs verður þú búin/n að prjóna húfu og peysu á þig eða þína, jafnvel í gjöf, sem þú sjálf/ur prjónaðir!

SAMFÉLAGSMIÐLAR

Mér finnst æðislegt að sjá vörurnar frá Tiny Viking í notkun og þína útgáfu af uppskriftunum mínum ♡ Endilega merktu #tinyviking @tiny_viking_ við myndina þína

  • Facebook
  • Instagram

VERUM Í SAMBANDI

Skráðu þig á póstlistann

Tiny_Viking_Logos-2-black.png

© 2017-2025, Tiny Viking, All Rights Reserved

bottom of page