top of page

Ebeltoft sweater er æðislegt verkefni þar sem maður getur látið sköpunargleðina ráða för. Auðveldlega má t.d. gera ermar styttri, bak- og framstykki í mismunandi lengd eða prjóna peysuna enn síðari. Það má líka snúa garn í bönd og vefja t.d. um úlnliði, festa band ca. við öxl og vefja niður ermina til að fá rykkingu (eins og bleika peysan á forsíðunni) nú eða sauma eitthvað munstur í peysuna. Möguleikarnir eru óendanlegir.

 

Peysan er prjónuð fram og til baka alla leiðina með sléttu prjóni eða svo kölluðu garðaprjóni. Við byrjum á að fitja upp fyrir bakstykki og endum með að fella af neðst á framstykki.

 

Prjónar og garn:

15 mm hringprjónar (30 - 80 cm langir. Hægt að prjóna á hvaða lengd sem er)

Garn (sem passar fyrir fyrir 5 mm prjóna). One size 100g, 400 metrar (ath. aðeins viðmið)

 

Mæli t.d. með: að prjóna með tveimur þráðum af Mohair Mix frá Icewear Garn eða Kid-Silk frá DROPS. 

Ebeltoft sweater

€7.00Price

    SAMFÉLAGSMIÐLAR

    Mér finnst æðislegt að sjá vörurnar frá Tiny Viking í notkun og þína útgáfu af uppskriftunum mínum ♡ Endilega merktu #tinyviking @tiny_viking_ við myndina þína

    • Facebook
    • Instagram

    VERUM Í SAMBANDI

    Skráðu þig á póstlistann

    Tiny_Viking_Logos-2-black.png

    © 2017-2025, Tiny Viking, All Rights Reserved

    bottom of page