Um námskeiðið
Lærðu að prjóna sokka á þínum hraða og þegar passar þér. Við lærum 2 tegundir af hælum. Þú færð skýra og góða kennslu frá textíl kennara og fatahönnuði Tinnu Laufdal. Við prjónum saman alveg frá því að fitja upp til fullkláraðs stykkis. 30+ myndskeið sem þú spilar og stöðvar að vild. Við tölum svo saman í lokuðum hóp á spjall síðunni okkar þar sem þú getur fengið aðstoð og hvatningu svo þú sitjir aldrei föst/fastur. Ath að það er heimavinna líka. Þátttakendur fá afslátt af garni og áhöldum í tveimur handavinnuverslunum. Í lok námskeiðs verður þú búin/n að prjóna sokka fyrir þig eða þína, jafnvel í gjöf, sem þú sjálf/ur prjónaðir! Lærum saman!
Yfirlit námskeiðs
Inngangur að prjóni
.2 steps
Byrjum á sokkum
.2 steps
Halldóru hæll
.2 steps
Auðveldur hæll
.2 steps
Umsögn
.1 step
