top of page

Saumanámskeið 30. júní - 4. júlí. Kl. 13:00 - 16:00. 13-16 ára

30. jún. 2025 - 4. júl. 2025

  • 5 Days
  • 2 Steps

About

Saumum saman í skapandi umhverfi í sumar. Námskeiðið er ætlað fyrir byrjendur og lengra komna. Áhersla er á einstaklingsmiðaða kennslu. Kennari námskeiðs mun byrja á því að kynna nemendur fyrir saumaskap, veita innblástur í endurnýtingu efna, kynna verkefni og koma nemendum af stað í sinni hugmyndavinnu. Nemendur læra um einfaldar sniðteikningar og hvernig á að klippa efni. Í þessu námskeiði saumum við öll tösku. Hver og einn gerir sína útfærslu þar sem hugmyndaflugið ræður sköpum. - Lærum á saumavélina (einstaklingsbundið) - Hönnum og skissum hugmynd að eigin tösku. Eftir töskugerð, ef tími gefst er nemendum velkomið að sauma annað sem þeim dettur í hug, fatabreytingar eða annað. KENNARI Tinna Laufdal stofnandi Tiny Viking. Hún er menntuð í textílkennslu og fatahönnun. Hefur gert allskyns handavinnu frá því að hún var ung og hefur margra ára reynslu af textíl kennslu. EFNI Allt efni innifalið, nemendur eru þó hvattir til að koma með fatnað/efni til endurnýtingar. Ætlast er til að nemendur hafi með sér létt nesti. HÁMARKSFJÖLDI NEMENDA 12 HVER ÆTTI AÐ TAKA ÞETTA NÁMSKEIÐ? Öll börn sem hafa áhuga á að skapa/sauma/endurnýta eða bara búa til eitthvað með höndunum. Allir eru velkomnir þar sem aðferðir og verkefni eru hentug á öllum stigum. VERÐ kr. 15.000 kr. STAÐSETNING Nýsköpunarsetrið við Lækinn, Skólabraut 3 (Gamli Lækjarskóli)

SAMFÉLAGSMIÐLAR

Mér finnst æðislegt að sjá vörurnar frá Tiny Viking í notkun og þína útgáfu af uppskriftunum mínum ♡ Endilega merktu #tinyviking @tiny_viking_ við myndina þína

  • Facebook
  • Instagram

VERUM Í SAMBANDI

Skráðu þig á póstlistann

Tiny_Viking_Logos-2-black.png

© 2017-2025, Tiny Viking, All Rights Reserved

bottom of page