top of page

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring. Við byrjum á hálsmálinu og prjónum niður berustykkið, setjum erma lykkjur á hjálparnælur og klárum að prjóna búkinn. Næst tökum við erma lykkjurnar af nælunum, upp á hringprjón og klárum að prjóna ermar.

 

Með þessari aðferð er auðvelt að leika sér að sídd peysu og erma (sumir vilja hafa stuttar, aðrir í síðari kantinum. Þá bætir maður einfaldlega við eða gerir færri umferðir) 

 

Garn:

Prjónað með einum þræði DROPS merino extra fine og einum þræði silk mohair saman.

 

Stærðir og magn af garni:

                                Merino - Mohair:

0-1 árs: 3 dokkur (150g) - 2 dokkur (50g)

1-2 ára: 4 dokkur (200g) - 3 dokkur (75g)

2-4 ára: 5 dokkur (250g) - 3 dokkur (75g)

4-6 ára: 6 dokkur (300g) - 3 dokkur (75g)

6-8 ára: 7 dokkur (350g) - 4 dokkur (225g)

8-10 ára: 8 dokkur(400g) - 5 dokkur (125g)

10-12 ára: 9 dokur (450g) - 5 dokkur (125g)

 

Prjónfesta:

19 L x 26 umf = 10 x 10 cm

með einum þræði drops merino extra fine og einum þræði silk mohair á 4,5 mm prjóna

 

Það sem þarf:

  • Garn
  • 3,5 mm hringprjónn (40 cm langir)
  • 4,5 mm hringprjónar (40 og 60/80 cm langir)

  • 3,5 mm sokkaprjónar
  • Prjónamerki, 2x stórar hjálparnælur, saumnál og skæri.

 

Hönnuður:

Tinna Laufdal

 

Þegar þú gengur frá greiðslu, veldu þá "sækja pöntun" þá sleppur þú við sendingarkosnað (uppskriftina færðu á rafrænu formi).

 

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd ferðu sjálfkrafa beint yfir á síðu þar sem þú getur niðurhalað uppskriftinni. Einnig færðu sendan tölvupóst þar sem þú getur líka niðurhalað henni. Ef þú finnur ekki tölvupóstinn, prófaðu að athuga í "spam" hólf.

Hanna MINI peysa - uppskrift

8,00€Price
    bottom of page